13.9.2010 | 13:13
Viljum halda í sérstöðu.12 sep
Nasavængir hans hafa en burðarþol,þó ekki bóli en á blóðnösum, hugangrið liggur þó en upp á yfirborðinu í niðurlægingu þess að hafa verið látinn veiða Makríl undanfarið eins og ítalskur smátrillukall á handfærum.
Það eru fullyrðingarnar sem bergmála í salnum sem lætur mann vorkenna honum og hann hefur ekki vit á því að halda kjafti þótt presturinn segi að það sé munur á víti og helvíti.
Öðru hvoru þegar hann getur ekki látið sinn tvídugga huga bera fimmtuggan skrokkinn bullar hann út í eitt .
Þetta er ég sagði Litli guli Heimir,þar sem hann stóð við horn andstæðingana og bauðst til þess að skora beint ,og skotið var svo langt frá markinu að andstæðingarnir lögðu boltann í netið hinum megin.
Það eina sem bjargar honum fyrir horn eru skórnir,keyptir í Kaupfélaginu á Raufarhöfn 23 Júlí 1999.
Á þeim hvíla þau álög að þeir skori mörk sé eigandinn alveg kyrrstæður þannig að þeir einir hafi völdin og skori endalaust úr öllum kyrrstöðum og haldi þannig uppi heiðri eigandans.
Í tuðrurímum stendur.
Þó að fjör mitt þrotni,
mun þúfan í þessum botni,
hverfa um síðir burt.
Þó boltinn í bleytunni blotni,
birtist alltaf sá skotni,
Þegar hann kemst á þurrt.
Nýjustu færslur
- 9.10.2012 Aðalfundur feitafélagsins 2012.
- 18.9.2012 fyrir sjóndapra.feitir 2012 án sumra
- 18.9.2012 Haust byrjun 2012
- 8.9.2012 Nýtt tímabil 2012-2013
- 19.3.2012 Guðjónsmót haldið á Þingeyri 17 Mars 2012
- 12.2.2012 Hamhleypurnar þrjár...............
- 12.2.2012 Bjartsýnisverðlaun F.C.Feitafélagsins 2012
- 11.12.2011 Úr ljóflokknum"Vakir valdir vaskir menn"
- 31.10.2011 Það er að hjarna yfir.
Tenglar
Mínir tenglar
- FÓTBOLTI GÓÐUR..BETRI..BESTUR
- SÆLKERAMATUR NAMMI..NAMMI..NAM
- VÍNKLÚBBURINN. Hann elskaði þilför hann þórður......
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.