26.2.2009 | 23:38
Sveiti Massi.... Þá var öldin önnur...
Massi var eins og í heyranda hljóðan Masaður náungi með ótrúlega mikla Estrógens í skrokknum.Þessi hormón er mjög mikið í kvenfólki á breytingaskeiðinu,en er stundum líka í karlmönnum þannig að þeir svitna svo mikill býsn að pollar myndast þar sem þeir eru í aðgerð hverju sinni .
Í þessu tilfelli var það íþróttagólfið á Torfnesi sem var fórnarlambið og félagar hans í fótboltanum.
Á meðan Massi var innan raða feitafélagsins,kröfðust menn að hann notaði svitaband og helst lítið handklæði meðan á leik stóð,því annars voru menn að detta í svitataumum sem mynduðust í kjölfar hans .
Og ekki dó Massi ráðalaus,heldur lét sér vasa hár og gekk í bollum með löngum ermum til að geta þurrkað svitann framan úr sér,sem hárinu tókst ekki að halda í skefjum.
Eitt sinn í miklum hasarleik þar sem engin gaf neitt eftir er Massi í sókn og Svenni Guðjóns til varnar,kemst Massi fram hjá honum með góðu sólói.en Þegar Svenni snýr sér við til að elta Massa fellur hann þá við það sama með miklum tilþrifum í svitapolli ,var þetta svo harður skellur að hann vankaðist.
Massi snéri sér strax á hæl og stumraði yfir Svenna.Og sagði svo með djúpri meiningu um leið og hann leit niður á skóna hjá honum.Þú þyrftir að fara að skipta um skó Svenni minn,botninn er alveg búinn undir þeim.
Margur svitinn seytlar hollu,
spýtist út við Massa stuð.
Þó hann hreyfi sig í golu,
falla gaurar við hans puð.
Nýjustu færslur
- 9.10.2012 Aðalfundur feitafélagsins 2012.
- 18.9.2012 fyrir sjóndapra.feitir 2012 án sumra
- 18.9.2012 Haust byrjun 2012
- 8.9.2012 Nýtt tímabil 2012-2013
- 19.3.2012 Guðjónsmót haldið á Þingeyri 17 Mars 2012
- 12.2.2012 Hamhleypurnar þrjár...............
- 12.2.2012 Bjartsýnisverðlaun F.C.Feitafélagsins 2012
- 11.12.2011 Úr ljóflokknum"Vakir valdir vaskir menn"
- 31.10.2011 Það er að hjarna yfir.
Tenglar
Mínir tenglar
- FÓTBOLTI GÓÐUR..BETRI..BESTUR
- SÆLKERAMATUR NAMMI..NAMMI..NAM
- VÍNKLÚBBURINN. Hann elskaði þilför hann þórður......
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.