9.3.2009 | 22:41
8.Mars...Endurkoma...

Og svona er nú raunveruleikinn sem gerir það að verkum að Jón Sigurpáls kemur sér ekki að vinnu á mánudagsmorgni,eða Eggert Stefáns eða Tolli eða Jói eða Frissi eða Rúnar af því að bláa eldingin vaknaði af Þyrnirósasvefni sínum.
Í fjarlægri framtíð munu styttur rísa,mannkynssagan mun geima klausur,heimspekingar munu vitna í,og jafnvel trúarbrögð myndast.
Úr sögubók framtíðarinnar.
Þegar rætt er um efnismeðferð listamannsins Jón Sigurpálssonar eru greinileg umskipti í uppbyggingu aðferða á þessum tíma(það er að segja á góu 2009 og frameftir).Í stað þess rauða sem hefur verið ríkjandi hjá honum fer að bera meira á bláa litnum og í verki hans Mannsins móðurverður blái liturinn yfirþyrmandi.Er það sagt að hann hafi reynt að skera af sér eyrað til að nálgast rauða litinn en það mistókst ,því það sem hann hélt að væru skærri ,var blá málingatúlpa og spýtist úr henni yfir allt hans listagallerí í einum allsherjar bláum boga,reyndi hann að þurrka litinn af verkum sýnum þar til hann varð brjálaður og enn frægari seina meir.
8.Mars.2009.blaðagrein.
Holskeppla óhappa dundi yfir bæinn í gær.Bilaður maður á vanræktum lyftara ók inn í verslunina bílavarahlutir ehf.Í för með lyftaranum var fullt kar af ísmolum sem heltist yfir afgreiðslumanninn með ísköldum áhrifum verknaðarins .
Ísinn átti að fara í rannsóknarstofu Matís á mjög viðkvæmu skeiði fiskrannsókna á litlum fiski sem fannst í djúpinu en vegna þess að ísinn kom ekki á réttu augnablikki skrap fiskurinn saman og hvarf.Missti þá stjórnandi ransóknanna stjórn á sér og fór stjórnlaus upp á vetfanginn,en datt þá um ísinn og fékk í bakið.Þegar hringt var í sjúkrabíl fékk boðandinn alltaf samband við grátandi símaviðgerðarmann upp á þverfjalli,sem þvældi bara um í símanum umblá kallaMiklar skemmdir urðu á húsnæðinu var öll framhliðin inn úr ,og þegar smiðir komu til að taka þær út datt þverbiti ofan á einn smiðinn og steinrotaðist hann við atvikið, sem kom ekki að sök því nóg var af ísnum til að halda honum í horfinu.
Leikurinn endaði þannig að fyrsti gerandi var innanhúsmaður í björgunarfélaginu sem var við hlið verslunarinnar og ók hann öllum slösuðum upp á sjúkrahús í bíl sveitarinnar,þegar vakthafandi læknir sá hópinn var það haft eftir honum .Að aldrei hefði hann séð rauðahluta feita félagsins svona illa á sig komna.
Formaðurinn lifi.
Nýjustu færslur
- 9.10.2012 Aðalfundur feitafélagsins 2012.
- 18.9.2012 fyrir sjóndapra.feitir 2012 án sumra
- 18.9.2012 Haust byrjun 2012
- 8.9.2012 Nýtt tímabil 2012-2013
- 19.3.2012 Guðjónsmót haldið á Þingeyri 17 Mars 2012
- 12.2.2012 Hamhleypurnar þrjár...............
- 12.2.2012 Bjartsýnisverðlaun F.C.Feitafélagsins 2012
- 11.12.2011 Úr ljóflokknum"Vakir valdir vaskir menn"
- 31.10.2011 Það er að hjarna yfir.
Tenglar
Mínir tenglar
- FÓTBOLTI GÓÐUR..BETRI..BESTUR
- SÆLKERAMATUR NAMMI..NAMMI..NAM
- VÍNKLÚBBURINN. Hann elskaði þilför hann þórður......
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.